29.09.2009 11:55:17 / Húsó
Sælar stúlkur
planið var að fara sumarbústaðarferð 9-11 okt.En það hefur komið oggulítill árekstrur uppá hjá mér varðandi þessahelgi og ég þarf líklegast að fara í vinnuferð á Höfn í Hornafirði....aldrei komið þangað áður

þá er það að velja aðra helgi...þá kemur helgin eftir, 16-18 okt til greina hjá mér og svo helgin 30. okt - 1 nóv
sorry...þetta er eina helgin sem að samstarfskonur mínar komast á Höfn og það var auðveldast fyrir mig að hliðra.... þetta er ekkert nema viðhættningur hér!
hvað segiði um hinar helgarnar? og þá má líka stinga uppá öðrum helgum ef það hentar betur?
kv.
Guðrún H
»
28.09.2009 21:41:59 / Húsó
Sælar, ég er búin að vera veik síðan á laugardag. Ég hélt að mér myndi batna en veikindin hafa eiginlega bara versnað. Ég get því ekki haldið saumó á morgun. Hann er up for grabs ef einhver vill halda hann á morgun...getur einhver a.m.k. boðið Hildi í heimsókn...hehe

Sorry sorry sorry allar saman!
Kær kveðja Kría
»
22.09.2009 16:31:13 / Húsó
Saumó hjá Kríu þriðjudaginn 29. september kl. 19:30. Endilega látið vita hverjar komast

Sorry ruglið í mér...
»
21.09.2009 21:23:53 / Húsó
Sælar
Ég stefndi á að halda saumó Á MORGUN, þriðjudaginn 22. sept. en það lítur út fyrir að hann verði sleginn af. Ég sendi skilaboð á LazyDaisy á Facebook en það svaraði enginn nema Ester og það er ekki víst að hún komist. Ég veit að Anna kemst en ég veit ekki með ykkur hinar. Eníveis, ég held ég sleppi því bara að halda saumó á morgun og set nýja dagsetningu: þriðjudagurinn 29.september!!! HVER OG HVER OG VILL KOMA?
Kær kveðja Kría
»
08.09.2009 14:21:46 / Húsó
»
30.08.2009 13:24:58 / Húsó
Hvað segiði um að við tökum frá helgina 9-11. okt fyrir bústaðarferð?
hmmm...haaa...hmmmm?????
planið er þá að fara í Skorradalinn og gista allavega 1 nótt.... þá örugglega frá laugardegi yfir á sunnudag....
tékkitát!
»
26.08.2009 11:07:00 / Húsó
Hún Iðunn okkar á afmæli í dag

hún er 26 ára í dag
Innilega til hamingju með daginn þinn elsku Iðunn
knús

»
24.08.2009 20:47:39 / Húsó
Já stelpur mínar við erum loksins búin að skíra gullmolann okkar og mér fannst ég verða að segja ykkur frá því.

Hann heitir
Atli Snær.

Hlakka til að sjá ykkur sem fyrst.
Bkv.,
Hildur
P.s. ég kann ekki að setja mynd en þið getið ímyndað ykkur að hér fyrir ofan sé mynd af strákaling
»
14.08.2009 19:46:34 / Húsó
Jæja stúlkur...það var saumó hjá Iðunni í gær... og þvílíka hlaðborðið.... rosa gott
allar stúlkurnar sem mættu komu með börn, eða hluta af börnum nema Svana.. en hún hélt bara uppi stuðinu í staðinn

það sem þið misstuð af... en er næsta mál á dagskrá:
- sumarbústaðarferð - vonandi í október - við þurfum að finna góða helgi helst í gær svo allar geti tekið frá helgi

áætlað er að reyna að fara í skorradalinn

- taka frá helgi næsta sumar þar sem við munum fara allar saman með okkar öllu hafurtaski í útilegu

(hvernig líst ykkur á það?)
- berjamó?
- ferð til útlanda í framtíðinni

- allar að biðja um gjafabréf hjá flugfélagi í jólagjöf

- næsti saumaklúbbur er kominn yfir á herðar Betu
og þá verða ekki fleiri mál á dagskrá að þessu sinni...
veriði sæl.
»
10.08.2009 10:20:41 / Húsó
Hæ görlís
Finnst vera kominn tími á saumó og var því að spá í að halda saumó núna á fimmtudaginn, kannski um 4 leitið

Hentar þessi tími ykkur??
Endilega kvittið og látið vita!
Kv. Iðunn
»
06.08.2009 16:21:11 / Húsó
HVENÆR ER NÆSTI SAUMÓ!?!?! HVENÆR ER NÆSTI SAUMÓ!?!?! HVENÆR ER NÆSTI SAUMÓ!?!?! HVENÆR ER NÆSTI SAUMÓ!?!?!
Elfa beilaði og er komin aftur til útlanda. Hver vill halda?
»
30.06.2009 12:44:43 / Húsó
Jæja stúlkur, næsta ganga er á morgun. Gengið verður upp á Eyrarfjall sem er 350-400m hækkun. Endilega komið með okkur

Kv. Anna
»
12.06.2009 20:24:39 / Húsó
Jæja stelpur ég lét mig hafa það og fór með göngugörpunum Kríu og Önnu í fjallgöngu síðasta miðvikudag og þetta var algjört æði
væri rosalega gamann að fjölmenna næst mið 24 júni.
þið sögðuð að ef ég myndi fara þá kæmuð þið með næst,
ef Svana getu þetta þá geta allir þetta 
ætla að reyna setja inn nokkrar myndir ef ég get það 
kv. Svana
»
04.06.2009 20:17:09 / Húsó
Ég ákvað að sétja hér inn færslu fyrir hana Hildi þar sem hún auglýsir saumó í comment við gönguna.... Copy/paste
Saumaklúbbur hjá mér 9. júní kl 19. Ég er ekki með mat heldur smárétti þó klúbburinn sé svona snemma...ég er bara að hugsa ef einhver vill koma með börn þar sem ég "neyðist" til að hafa mín 
»
24.05.2009 21:30:48 / Húsó
Jæja, þá er komið að næstu göngu sem verður á miðvikudaginn 27. maí. Nú verður labbað upp á Litla-Meitil. Endilega allar að mæta

Kv. Anna og Kría
»
Síður:
1 2 3 ...
15